Kjöreign fasteignasala kynnir til sölu nýlega og glæsilega 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í nýju lyftuhúsi í Kuggavogi 3 í Vogabyggð í 104 Reykjavík.
Um er að ræða íbúð nr. 206 sem er glæsileg og rúmgóð þriggja herbergja íbúð með sjávarútsýni. Íbúðinni fylgir bílastæði í bílakjallara. Íbúðin er skráð 109,3 fm á stærð og þar af er geymslan 9,8.- fm.
Dýrahald er leyfilegt í húsinu.Lýsing: íbúðin skiptist í forstofu, eldhús og stofu. Tvö rúmgóð svefnherbergi, sjónvarpshol, baðherbergi og þvottahús. Stæði er í bílakjallara og sér geymsla í sameign.
Nánari lýsing:Forstofa: með fataskáp og parketi á gólfi.
Eldhús: með fallegri hvítri innréttingu, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél, eyju með eldavél og parket á gólfi.
Stofa / borðstofa: í opnu rými með eldhúsinu og með útgengi á 4,7 fm svalir með fínu útsýni.
Sjónvarpshol: með parketi á gólfi.
Baðherbergi: rúmgott með "walk in" sturtu, baðkari, innréttingu og flísum á gólfi og veggjum.
Svefnherbergi I: mjög rúmgott með fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi II: með fataskápum og parketi á gólfi.
Þvottahús: innan íbúðar með flísum á gólfi.
Bílastæði: sérbílastæði í bílageymslu.
Geymsla: 9,8 fm sér geymsla í sameign.
Hjóla- og vagnageymsla: sameiginleg í kjallara.
Vogabyggð er skjólsæl perla á höfuðborgarsvæðinu í nálægð við hafið og náttúruna. Frábær kostur fyrir þá sem kjósa að búa í umhverfi sem býður bæði upp á borgarbrag og í senn sterka tengingu við náttúruna. Hjóla- og göngustígar liggja meðfram ströndinni sem og upp í Elliðaárdal. Dýrahald er leyfilegt í húsinu.Upplýsingar gefa sölumenn Kjöreignar ehf. í síma 533-4040 eða
[email protected]. Vinsamlegast pantið skoðunartíma.
Ásta María Benónýsdóttir lögg. fasteignasali gsm. 897-8061
[email protected]Dan Wiium hdl., og lögg. fasteignasali gsm. 896-4013
[email protected]