Kjöreign fasteignasala, Ármúla 21, sími 533-4040 kynnir:
Glæsileg 2ja herbergja íbúð við Laugaveg 98. Vel staðsett 54 fm íbúð á 3 hæð ásamt 3,5 fm geymslu samtals birt stærð 59,1 fm. Íbúðin skiptist í : forstofu, stofu, eldhús, svefnherbergi og baðherbergi. Sér geymsla sameign ásamt tveimur sameiginlegum geymslum. Sameiginlegt þvottahús og hjólageymsla í sameign.
Nánari lýsing: forstofa með fatahengi og parket á gólfi. Eldhúsið með ágætis innréttingu. Gengið er inn í stofu frá forstofu. Tvöfaldir gluggar sem snúa að Laugavegi. Stofan parketlögð. Svefnherbergið er parketlagt með góðum fataskápum. Baðherbergið er flísalagt með baðkari. Góð sérgeymsla í sameign.
Þvottahús er í sameign í kjallara ásamt hjólageymslu. Tvær stórar sameiginlegar geymslur eru í sameign. Hægt er að ganga út úr sameign í kjallara og út í bakgarð. Þar er sameiginlegur sólpallur fyrir húsið. -
Íbúðin er nýmáluð. Búið er að hreinsa og fóðra frárennslislagnir. Ný rafmagnstafla í sameign. Samkv. seljanda var þak endurnýjað 2013. Falleg íbúð á þessum vinsæla stað í miðbæ Reykjavíkur þaðan sem fjöldinn allur af veitingastöðum og verslunum eru í göngufæri. Mathöllin á Hlemmi er stutt frá en í kringum Hlemm er fyrirhuguð mikil uppbygging á næstu árum þar sem áhersla verður lögð á að búa til nýjan og betri miðbæ. Íbúðin hefur fengið gott viðhald. Sjón er sögu ríkari.Upplýsingar gefa sölumenn Kjöreignar ehf. í síma 533-4040 eða [email protected]. Vinsamlegast pantið skoðunartíma.Dan Wiium hdl., og lögg. fasteignasali gsm. 896-4013 [email protected]Ásta María Benónýsdóttir lögg. fasteignasali gsm. 897-8061 [email protected]