Kjöreign ehf., fasteignasala, Ármúla 21, Reykjavík, sími 533-4040 kynnir bjarta og rúmgóða endaíbúð með aukaherbergi í kjallara við Fellsmúla, Reykjavík. Birt stærð er 129,9 fm.
Lýsing. forstofa, setustofa og borðstofa, eldhús, baðherbergi, þrjú svefnherbergi, tvennar svalir, geymsla í kjallara og íbúðarherbergi í kjallara.
Nánari lýsing. Forstofa með skáp. Eldhús með borðkrók, eldri Ikea innrétting. Stofur eru rúmgóðar og er hurð út á suðursvalir. Gaflgluggi er á borðstofunni. Hjónaherbergi með skáp og hurð út á austursvalir. Baðherbergi með glugga, baðker, flísalagt. Tvö barnaherbergi, annað er stærra. Parket er á íbúðinni, komið að endurnýjun. Góð geymsla í kjallara og íbúðarherbergi með sameiginlegri snyrtingu með gluggum á tveimur veggjum. Leigutekjur eru af herberginu í kjallara.
Björt og rúmgóð íbúð með fallegu útsýni. Aukaherbergi í kjallara (leigueining). Húsið er steníklætt að utanverðu. Gluggar og gler á suðurhlið og austurhlið eru nýjir. Þak var endurnýjað og yfirfarið fyrir nokkrum árum. Drenlagnir og frárennslislagnir voru endurnýjaðar fyrir nokkrum árum. Nýlega voru settar sameiginlegar hleðslustöðvar á bílastæði. Makaskiptir eru möguleg á minni íbúð í Austurborginni.
Upplýsingar gefa sölumenn Kjöreignar ehf. í síma 533-4040 eða á [email protected]
Dan Wiium lögm. og lögg. fasteignsali gsm. 896-4013 eða [email protected]
Ásta María Benónýsdóttir lögg. fasteignasali gsm. 897-8061 eða [email protected]